Search

Æfingarnar verða 2 sinni í viku á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 18 - 20/21 í Bolaöldu. ATH: iðkendur þurfa að eiga hjól og allan öryggisbúnað til að taka þátt á námskeiðinu. Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband í gegnum netfangið motocrossdeild.umfs@gmail.com eða með í gegnum facebook síðu motocrossdeildar UMFS
Fyrirkomulag námskeiðs: Kl. 13:00 - 13:50 æfing (styrktaræfing). Kl. 13:50 - 14:10 nesti (börn koma með nesti að heiman). Kl. 14:10 - 15:00 útivera (hreyfing). Mikilvægt að vera mættur á réttum tíma. Fimmtudaginn 25. júní, í lok tímans, verður boðið uppá næringu frá MS, m.a. skvísur og kókómjólk. Hámarksfjöldi eru 18 krakkar. Þjálfari er Eyþór Stefánsson, eigandi og þjálfari Box800.
Fyrirkomulag námskeiðs: Kl. 09:30 - 10:10 er byrjað á æfingu inni þar sem lögð er áhersla á styrk og samhæfingu. Kl. 10:10 - 10:30 er nestispása (börn koma með nesti að heiman). Kl. 10:30 - 11:30 er útivera. Þá verður ýmist farið í göngutúra, hjólatúr, tekin æfing fyrir utan Box800 eða í nágrenni. Mikilvægt að vera mættur á réttum tíma. Fimmtudaginn 25. júní, í lok tímans, verður boðið uppá næringu frá MS, m.a. skvísur og kókómjólk. Hámarksfjöldi eru 18 krakkar. Þjálfari er Eyþór Stefánsson, eigandi og þjálfari í Box800.
Fimleikadeildin verður með sumarnámskeið fyrir börn fædd 2018 og 2019.
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson 15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00 Á námskeiðinu læra nemendur grunninn á því hvað D&D er og allt það helsta sem þarf að kunna til að verða góður Leikjameistari (DM). Námskeiðið hentar jafnframt fyrir þá sem hafa aldrei prufað D&D en eru forvitnir og þá sem hafa spilað en vilja prófa að búa til og leiða sína eigin herferð (campaign).   Haffi er reyndur DM með áratuga langa reynslu á að búa til og leiða herferðir og undir hans leiðsögn spreyta nemendur sig á að hanna og búa til sinn eigin D&D heim; með þema, söguþráð og tilheyrandi hliðar-…
Kennari: Sindri Mjölnir 15. 16. 18. og 19. júní — kl 10:00 - 12:00 Námskeiðið er kennt samhliða Dungeon Master námskeiðinu. Fyrsta daginn fá nemendur kynningu á DnD og hvernig persónur eru í boði fyrir leikmenn. Farið verður yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga við sköpun á útliti persóna, bæði stakar og í hóp. Nemendur fá síðan útdeilt persónum sem DM námskeiðið skapar og spreyta sig á að hanna útlit þeirra. Námskeiðið hentar þeim sem hafa ágætis vald á teikningum, en það er ekki sérstök krafa.  Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt…
Kennari: Sindri Mjölnir 15. 16. 18. og 19. júní — kl 13:00 - 15:00 Manga, myndasögur og myndskreytingar. Blekteikniaðferðir eru notaðar í mörgum miðlum og stílum. Þetta námskeið fer yfir þrennskonar grundvallarnálgun á blekteikningum, sem og grunnaðferðir í strúktur og skyggingum. Allt efni er innifalið og með námskeiðinu fylgir skissubók sem nemendur fá að eiga.  Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt barnabækur eins og “Skotti og sáttmálinn” en einnig unnið sérstaklega við persónusköpun. Þá hannaði hann lukkudýr (e. mascot) Dýraríkisins og teiknaði…
Kennari: Sindri Mjölnir 15. 16. 18. og 19. júní — kl 18:00 - 21:00 Á námskeiðinu læra nemendur öll helstu skrefin við að teikna með teikniforriti. Að námskeiði loknu ætti nemandinn að hafa lokið við eina fullkláraða mynd án bakgrunns. Námskeiðsdagar skipta skrefunum: Skissa; form og flæði Útlínur; tækni og penslar (brushes) Flatir litir; value og þema Ljós og skuggi; lögmál og stillingar.  KRÖFUR: Nemendur þurfa eigin tölvu+teikniborð (eða spjaldtölvu+penna) og aðgang að teikniforriti (Adobe Photoshop æskilegast) Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann…
Kennarar: Hafþór Agnar Unnarsson Sindri Mjölnir 22. júní - 25. júní — kl 10:00 - 12:00 Lærðu að leika fyrir framan myndavél! Örnámskeið í kvikmyndaleiklist gefur þér tækifæri að læra kúnstir kvikmyndaleikarans undir handleiðslu atvinnukvikmyndaleikstjóra og -leikara. Kennsluumhverfið er allt að þriggja myndavéla upptökuver ásamt textavél (e.teleprompter). Nemendur geta fylgst með hvað myndavélarnar sjá, en myndefninu veður varpað á stóran skjá í rauntíma, og læra því ekki bara þegar röðin er komin að þeim fyrir framan vélarnar. Námskeiðið er kennt af tveim kennurum, annar með leikurum í “…
Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson 29. júní - 2. júlí — kl 10:00 - 12:00 Á námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöður í brúðuleik og að búa til “lifandi” brúðu úr hversdagslegum hlutum sem oftar en ekki finnast í ruslinu. Nemendur undir leiðsögn Haffa spreyta sig á að “finna leikinn” (Le jeu), hlutastjórnun (Object manipulation), rýmisvitund og öndun til að gefa brúðunum líf.  Haffi (Hafþór) lærði leiklist í Rose Bruford í London þar sem hann útskrifaðist árið 2019, í náminu starfaði hann meðal annars með Listaháskóla Eistlands í Tallin og leiklistahópunum “Two Worlds Collective”, “Out of Duck…