Félagsmiðstöðin Zelsíuz

Sveitarfélagið Árborg starfrækir félagsmiðstöðina Zelsíuz sem hefur verið starfrækt síðan árið 1980. Í Zelsíuz er boðið upp á uppbyggilegt frístundasstarf fyrir 10 - 16 ára börn og unglinga í frítíma þeirra. Áhersla er lögð á að ná til þeirra barna og unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings og að bjóða upp á fjölbreytileg viðfangsefni. Unnið er í klúbbum, sértæku hópastarfi, opnu starfi og loks stendur félagsmiðstöðin fyrir stórum sem smáum viðburðum.

Umsjónarmaður

Guðmunda Bergsdóttir netfang: gudmunda.bergs@arborg.is

Um Zelsíuz

Hlutverk félagsmiðstöðvarinnar er tvíþætt. Annars vegar að bjóða börnum og unglingum á aldrinum 10 -16 ára upp á frístundastarf sem hefur forvarnar-, uppeldis og menntunargildi og tekur mið af aldri þeirra og þroska. Hins vegar að bjóða upp á aðstöðu til afþreyingar og samveru með jafnöldrum í öruggu umhverfi undir handleiðslu starfsmanna. Áhersla er lögð á að virkja börn og unglinga til virkrar þátttöku og framkvæmda í starfinu, einkum þau sem þurfa sérstaka hvatningu og stuðning vegna félagslegra aðstæðna.

Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að ná til allra nemenda á mið- og unglingastigi grunnskólanna og gefa þeim tækifæri á að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli. Leitast er við að mæta hverjum einstakling á hans forsendum og veita honum tækifæri til að njóta sín í félagsstarfinu. Félagsmiðstöðin er vettvangur þar sem börn og unglingar fá tækifæri til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð og sýna sjálfstæði í vinnubrögðum. Starfið einkennist af gagnkvæmri virðingu, jákvæðum samskiptum og ungmennalýðræði.

Félagsmiðstöðin Zelsíuz heldur úti fjölbreyttri dagskrá í samstarfi við Z-ráðið sem tekur mið af áhugamálum unglinganna hverju sinni. Félagsmiðstöðin kappkostar að stuðla að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal barna og unglinga og örva félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Félagsmiðstöðin Zelsíuz vinnur einnig markvisst að forvarnarmálum og valdeflingu en starfsmenn hennar notast við aðferðafræði reynslunáms

Image
zelsiuz hús

Unglingastarf

Image
zelsiuz hús

Miðdeildarstarf

Image

Hinsegin opnanir

Image
zelsiuz hús

Klúbbastarf

Viðburðir

28 september 2023 19:00 - 21:00
Austurvegur 2, 800 Selfoss, Ísland

Opið hús fyrir 7.bekk úr Sunnó, Valló og BES í Zelsíuz

6 október 2023 - 8 október 2023

Landsmót Samfés sem haldið er að hausti ár hvert. Dagskrá Landsmóts Samfés er þríþætt. Unnið er í fjölbreyttum smiðjum þar sem markmiðið er að ungmennin taki það sem þau læra með sér heim og miðli reynslu sinni og þekkingu í sinni félagsmiðstöð.

26 febrúar 2024 - 1 mars 2024

Forvarnarteymi Árborgar stendur fyrir Hinsegin viku í Árborg. Hátíðin er haldin til að auka fræðslu, skapa umræður og veita stuðning til þeirra sem tengja við hinsegin málefni á einn eða annan hátt.

Hér má finna Zelsíuz dagatalið fyrir skólaárið 2023-2024

Fréttasafn

Hér er listinn yfir þá einstaklinga sem að komast með á Samfestinginn
Hér er listi yfir þá sem að komast mér á USSS
Image
20. febrúar 2023
Hljómsvetin Hail 2 U sigraði Samzel, söngkeppni Zelsíuz