Search

Mánaðarlegt 7. bekkjarkvöld í Zelsíuz, Austurvegi 2. Öllum börnum í 7. bekk í Árborg er velkomið að koma í Zelsíuz milli 18:30-20:30. 
Gistinótt Zelsíuz er eitt af stærstu og vinsælastu viðburðum ársins fyrir ungmenni í 8.–10. bekk í Árborg. Viðburðurinn er haldinn milli jóla- og nýars þar sem ungmennum býðst að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá og fjöri í öruggu og skemmtilegu umhverfi. Á dagskrá er jafnan sundlaugapartý með DJ, lazertag í íþróttahúsi Vallaskóla, fjölbreyttar smiðjur og leikir inni í félagsmiðstöðinni ásamt því er boðið upp á pizzur, snarl og kósýheit langt fram eftir nótt.  
Samzel er árleg söngkeppni fyrir ungmenni í 8.-10. bekk í Árborg sem haldin er í Zelsíuz. Keppnin veitir ungu fólki frábært tækifæri til að stíga á svið og sýna hæfileika sína fyrir áhorfendum. Sigurvegari Samzel vinnur sér inn þátttökurétt í USSS, undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi.  
Danskeppni Samfés er árleg danskeppni fyrir ungmenni á aldrinum 10–18 ára. Keppt er í einstaklings- og hópakeppni í mismunandi aldursflokkum. Zelsíuz mun senda fulltrúa í danskeppnina og verður skráning auglýst þegar nær dregur.  
Æfingatími Frískra Flóamanna er kl. 17:15 á þriðjudögum og fimmtudögum og kl. 9:10 á laugardögum. Hlaupið er frá Sundhöll Selfoss. Æfingar eru ókeypis, aðeins að mæta. Allir velkomnir bæði byrjendur og vanir hlauparar. Góð hreyfing í góðum félagsskap. Þjálfari, Sigmundur Stefánsson stýrir hópnum frá september – maí. Facebook síða hópsins: https://www.facebook.com/groups/135968469810840