Um Bifröst

Frístundaheimilið Bifröst er frístundaheimili fyrir börn í 1.-4. bekk í Vallaskóla sem hefur starfað síðan í september árið 1994. Bifröst hefur aðstöðu í tveimur húsnæðum, annars vegar við Tryggvagötu 23b (Bifröst) undir starf 1.- og 2. bekkjar, og hinsvegar í Útistofu 1 í Vallaskóla við Sólvelli 2 (Ásgarður) þar sem starf 3.- og 4. bekkjar fer fram.

Húsnæði Bifröst

Starfsemi

Starfsemi í Frístundaheimilinu Bifröst hefst kl. 13:00 alla daga að hefðbundnum skóladegi loknum og stendur yfir til kl. 16:15 á daginn.

Í Bifröst er dagsskrá byggð á svokölluðu valtöflukerfi þar sem börnin velja sjálf rými til þess að leika sér í tiltekinn tíma. Börnin fá að velja sér stöð eða smiðju þrisvar yfir daginn.

Sem hluti af uppbroti fyrir fjölbreytileika í starfi bjóðum við börnum sem skráð eru í frístund upp á spennandi dagsskrá, sem og heimsóknir í félagsmiðstöðina, á bókasöfn Árborgar og Vallaskóla, leik í júdósal UMFS, baksturssmiðjur í heimilisfræðistofu Vallaskóla ásamt öðrum spennandi dagsskráarliðum sem eru síbreytilegir eftir áhuga og framboði.

Aðstaðan


Bifröst er staðsett við Tryggvagötu 23b. Það húsnæði skiptist upp í tíu mismunandi rými fyrir leik og starf, ásamt skrifstofum forstöðumanna, eldhúsi og fatahengi. Umhverfis húsnæðið er útisvæði með leikvelli sem er einnig nýtt í starfi.

Ásgarður

Starfsemi Bifrastar fyrir 3.-og 4. bekk er staðsett í Ásgarði (útistofu 1 (Ú1)) í Vallaskóla við Sólvelli 2. Sú aðstaða skiptist upp í tvö rými, annað þeirra fyrir leik og starf, og annað smærra rými fyrir valtöflu og hirslur. Auk þess höfum við aðgang að spennandi rýmum sem við nýtum í samstarfi við Vallaskóla. Umhverfis aðsetrið er útisvæði með leikvelli sem einnig er nýtt í starfi.

Í Bifröst er vegleg aðstaða undir leik og starf þar sem þáttakendum standa til boða fjölmörg svæði til þess að leika sér á.