Search

Kennari: Sindri Mjölnir 29. júní - 2. júlí — kl 13:00 - 15:00 Hvort sem þú vilt skrifa smásögur, leikrit, barnabækur, skáldsögur, eða kvikmyndir, þá þarf fyrst að kunna að segja sögu. Þetta námskeið kennir hvernig á að byggja skapalón góðrar sögu frá grunni. Kafað verður dýpra í hvað meinað er með upphafi, miðju og endi, og allt sem skiptir máli þar á milli. Við lok námskeiðs hafa nemendur í höndunum leiðarstjörnu að sinni fyrstu eða næstu sögu og vita skref fyrir skref hvað þarf að gera til að koma henni á blað. Tilvalið fyrir lestrarhesta og upprennandi rithöfunda af öllu tagi.  Sindri er…
Teacher/Prowadzenie: Krystyna Dobrzańska Krystyna is a filmmaker, VJ, and community artist currently travelling across Europe as part of the Erasmus Mundus Master’s programme in Documentary Film Directing. Krystyna jest filmowczynią, VJ-ką i artystką społeczną, obecnie podróżującą po Europie w ramach programu Erasmus Mundus na studiach magisterskich z reżyserii filmu dokumentalnego. For more information and sign up: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/ Workshops: - In English: Personal Comics (20/7 - 23/7) Create your own short comic book based on a personal story.…
Tónsmiðja Suðurlands býður upp á einstaklingsnámskeið í sumar! 30 mínútna einkatímar tvisvar í viku. Alls 6 skipti. Kennt er í júní og tíminn er valinn í samráði við kennara. Verð kr. 64.900.- Hljóðfæraleikur. Gítar, bassi, trommur Kennari: Joel Durksen Námskeið í hljóðfæraleik sem hentar byrjendum sem og lengra komnum. Lög eru valin eftir áhugasviði nemandans. Fyrir fólk á öllum aldri. Engar forkröfur. Skráning: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/course/30/0/0/7 Píanó og hljómborðsleikur Kennari: Stefán Þorleifsson Námskeið í hljóðfæraleik sem hentar byrjendum sem og lengra…
Skapandi sumarsmiðja þar sem við prófum allskonar skapandi verkefni. Vinnum með leir, málningu, perlur, textíl og skemmtilegt föndur. Áhersla á sköpunargleði, notalega stemningu og að hvert barn fái að njóta sín. Við vinnum í litlum hópum þar sem hvert barn fær næði og persónulega leiðsögn. Börnin taka heim allskonar fallega muni og listaverk sem þau skapa sjálf yfir vikuna. Takmörkuð pláss í boði
Sumarsmiðjur verða í gangi frá 15. júní til 17. júlí Það þarf að skrá þátttakanda á hverja einustu smiðju eða heilan dag, þegar á við. Fyrirkomulag smiðjanna er eftirfarandi: • 9:00-12:00 smiðja 1 • 12:00-13:00 hádegishlé • 13:00-16:00 smiðja 2 Þátttakendur geta skráð sig í staka smiðju eða heilan dag. • Verð fyrir staka smiðju er 1500 kr. • Verð fyrir heilan dag/ferð er 3000 kr. Skráning fer fram á sumar.vala.is - Fjöldatakmarkanir eru í hverja smiðju og opnað verður fyrir skráningu 1. júní. Skráning í smiðjurnar lýkur á miðnætti fimmtudags í vikunni á undan þeirri viku sem smiðjan fer fram…
Söngkeppni Zelsíuz, Samzel, fór fram í Zelsíuz föstudaginn 17.febrúar. Sigurvegari Samzel keppir síðan í USSS, Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi, sem verður haldin á Hellu föstudaginn 10.mars. Það voru 5 frábær atriði sem tóku þátt í Samzel. Það voru vinkonurnar, Anna Maria, Ásdís Eva, Dagmar Sif, Hjördís Katla og Olivia úr 10.bekk í Vallaskóla sem sungu Umbrella eftir Rihönnu. Þórhildur Lilja í 10.bekk í Vallaskóla sem að söng Draumaprinsinn eftir Röggu Gísla, Vigdís Anna í 9.bekk í Sunnulækjarskóla söng lagið The Way I Love You eftir Michal Leah. Vinkonurnar Ronja Lena og…
Sumarlestur Bókasafns Árborgar Selfossi hefst með prompi og prakt þann 16. júní þegar við fáum Sævar Helga Bragason í heimsókn! Sumarlestur er fyrir börn á aldrinum 8-11 ára, þátttakendur mæta kl. 11 eða kl. 13 eftir því sem hentar þeim betur og hvert skipti stendur yfir í u.þ.b. klukkutíma. Við fáum gesti, tökum þátt í happdrætti, föndrum og fyrst og fremst verður stuðlað að því að viðhalda lestrarhæfni og kynna ævintýraheim bóka fyrir börnunum. Þátttaka er ókeypis. Skráning er nauðsynleg en mæting er alveg frjáls, t.d. ef þátttakandi kemst bara í suma tímana.
Teikning I - fullorðinshópur (17 ára og eldri). Miðvikudaga kl 19:00-22:00 9. sept - 28. okt 2026 8 vikur Þetta námskeið hentar þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í teikningu eða fyrir þá sem vilja rifja upp grunnatriði klassískar teikningar. Markmiðið er að þjálfa góðan undirbúning, skilning og öryggi við teikningu. ​Viðfangsefni námskeiðinsins verða meðal annars: Teikning á frumformunum, lífræn form, skygging, fjarvídd, grunnur að mannslíkamanum, myndbygging og notkun blýanta og kola. Verð 75.000 kr Staðsetning Selið, Engjavegi 48, Selfossi. Skráning: https://www.arra.is/teikning1 ​…
Teikning I fyrir 13-16 ára (8-10 bekkur). Fimmtudagar kl 16:30-18:30 10. sept - 29. okt 2026 8 vikur Þetta námskeið hentar öllum ungmennum sem hafa gaman að því að teikna og vilja læra frekari undirstöðu í teikningu. Tímarnir leggja áherslu á klassíska teikningu en eru brotnir upp með skemmtilegum teiknileikjum og verkefnum sem skora á ímyndunarafl teiknarans. Viðfangsefni námskeiðinsins verða meðal annars: Teikning á frumformunum og náttúrulegum formum, skygging, fjarvídd, mannslíkaminn með fókus á persónusköpun og teikning dýra og furðuskepna. Verð 45.000 kr Staðsetning Selið, Engjavegi 48…
Borðtennisæfingar fyrir byrjendur í Stekkjaskóla. Æfingar vetur 2026 - 2027 (sept - maí) í Stekkjaskóla: mánudagar 15:30-16:30 þriðjudagar 15:30-16:30 Þjálfarar: Ruben Illera Lopez rubenillera@hotmail.com