Search
Félagsmiðstöðin er fyrir öll
Við vinnum í sameiningu að því að halda félagsmiðstöðinni okkar hreinni
Við berum virðingu fyrir okkur sjálfum, öðrum og eigum félagsmiðstöðvarinnar.
Við hlustum á starfsfólk
Orkudrykkir, nikótónpúðar, rafréttur, áfengi, tóbak og önnur fíkniefni, vopn og hlutir sem geta valdið öðrum skaða eða vakið hræðslu eru bönnuð í Zelsíuz.
Þetta gildir líka í öllum ferðum og viðburðum á vegum Zelsíuz.
Brot á reglum félagsmiðstöðvarinnar getur orsakað brottvísun úr félagsmiðstöðinni og/eða haft er samband við foreldra þar sem viðurlög verða rædd.…
Opnunin markar spennandi skref í þróun félagsmiðstöðvarstarfs í Árborg og þeirri vegferð að færa þjónustuna nær börnum og unglingum.
Hrafnhildur Svala er verkefnastjóri Zelsíuz í Stekkjaskóla og mun halda utan um starfið þar. Með nýja útibúinu verður félagsmiðstöðvarstarfið sýnilegra og aðgengilegra fyrir nemendur og gefst þeim tækifæri til að kynnast starfinu og starfsfólki Zelsíuz í sínu daglega umhverfi.
Hluti af starfinu verður að vera með opnanir fyrir nemendur í frímínútum og í hádeginu. Þá verður þjónusta fyrir nemendur í 5.–7. bekk aukin, með fleiri opnunum í hverri…
Á Landsmóti koma ungmenni úr félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu saman til að kynnast nýju fólki, taka þátt í fjölbreyttri dagskrá, vinna saman í smiðjum og ræða málefni sem skipta þau máli. Markmið mótsins er að ungmenni fari heim með nýja reynslu, hugmyndir og þekkingu sem þau geta miðlað áfram í sinni félagsmiðstöð. Zelsíuz sendir 5 fulltrúa úr Z-ráðinu á Landsmótið.
Félagsmiðstöðva- og ungmennahúsvikan er tileinkuð starfi félagsmiðstöðva og ungmennahúsa um land allt. Í tilefni þess mun Zelsíuz bjóða foreldrum, forráðamönnum, systkinum og öðrum aðstandendum að koma í heimsókn, skoða aðstöðuna og kynna sér starfið í húsinu. Öll hjartanlega velkomin!
Einu sinni í mánuði er haldið 7. bekkjarkvöld í félagsmiðstöðinni Zelsíuz fyrir alla nemendur í 7. bekk í Árborg.
Z-ráðið setur upp draugahús fyrir unglinga í 8.–10. bekk þar sem hrollur, spenna og óvæntar uppákomur eru í fyrirrúmi. Þorir þú að leggja leið þína í gegnum draugahúsið?
Zelsíuz heldur ball í Hvíta húsinu fyrir nemendur í 8.–10. bekk og býður félagsmiðstöðvum af Suðurlandi að taka þátt. Þar koma unglingar saman til að dansa, skemmta sér og hitta krakka úr öðrum félagsmiðstöðvum!