Fréttasafn

Image
Fatamarkaður í Pakkhúsinu
Fatamarkaður í Pakkhúsinu laugardaginn 20. apríl.

Fatamarkaður á vegum Pakkhússins verður haldinn laugardaginn 20. apríl í Pakkhúsinu við Austurveg 2a frá kl. 12:00-16:00!

Þetta er gott tækifæri til að fara í gegnum fataskápinn sinn og gefa gömlum fötum nýtt líf ásamt því að stuðla að sjálfbærni.

Boðið verður uppá vöfflur og kaffi á meðan birgðir endast!

Endilega hafið samband í gegnum facebook síðu Zelsíuz eða Pakkhússins ef þið hafið áhuga á að vera með bás, það kostar ekkert og hver og einn sér um sinn bás.

Hvetjum ykkur til að kíkja við og gera góð kaup!