Á landsmótinu koma saman ungmenni úr félagsmiðstöðvum víðs vegar af landinu ásamt starfsfólki. Mótið er kjörinn vettvangur fyrir ungmenni til að kynnast jafnöldrum sínum, mynda ný tengsl og taka þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.
Frá félagsmiðstöðinni Zelsíuz tóku fimm fulltrúar úr Z-ráði þátt og tóðu sig með mikilli prýði.
Óðinn Freyr kjörinn í Ungmennaráð Samfés
Á Landsmóti Samfés fer einnig fram kosning í Ungmennaráð Samfés, þar sem ungmenni víðs vegar af landinu fá tækifæri til að láta rödd sína heyrast.
Óðinn Freyr, einn af okkar fulltrúum úr Z-ráði, bauð sig fram og var heldur betur kosinn til eins árs! Við erum ótrúlega stolt af honum og vitum að hann á eftir að gera frábæra hluti í ráðinu.
