Landsmót Samfés 2024

Image
Zelsíuz tók þátt í Landsmóti Samfés helgina 4. - 6. október.

Helgina 4.-6. október fór fram Landsmót Samfés sem haldið er árlega á haustin og var haldið í fyrsta sinn á Blöndósi árið 1990. Nokkrir fulltrúar Z-ráðsins auk starfsmanns fóru á landsmótið sem var haldið á Akranesi í Grundaskóla að þessu sinni.  

Dagskrá Landsmóts Samfés er þríþætt. Unnið er í fjölbreyttum smiðjum þar sem markmiðið er að ungmennin taki það sem þau læra með sér heim og miðli reynslu sinni og þekkingu í sinni félagsmiðstöð. Auk þess er lögð rík áhersla á mikilvægi þess að hitta jafnaldra sína, kynnast nýju fólki og að allir skemmti sér sem best. 

Lýðræðisleg vinnubrögð allsráðandi á Landsmóti Samfés en lokadagur mótsins er helgaður Landsþingi ungs fólks. Það er Ungmennaráð Samfés sem hefur veg og vanda að því að skipuleggja þennan viðburð. Á Landsþinginu fær ungt fólk tækifæri til að tjá sig um hin ýmsu málefni þeim hugleikinn. Í kjölfar Landsþings tekur Ungmennaráð saman niðurstöður og sendir ályktanir á ráðuneyti, sveitarstjórnir, fjölmiðla og aðildarfélaga Samfés. 

Unglingarnir okkar voru til fyrirmyndar á Landsmótinu, þau tóku virkan þátt í dagksránni og skemmtu sér vel. Rannveig Kjartansdóttir var kosin í ungmennráðið til tveggja ára fyrir hönd Zelsíuz og óskum við henni innilega til hamingju með það! 

Nýkjörið Ungmennaráð Samfés
Fulltrúar Zelsíuz á Landsmótinu
Systurnar Guðrún og Rannveig Helga í Ungmennaráði Samfés.

Submitted by weronikaa on