Search

Opnunartími:Mánudaga - föstudaga: kl. 09:00 - 18:00Laugardaga: kl. 10:00 - 14:00Sunnudaga: LokaðLesstofan og Listagjáin eru opin á sama tíma og bókasafnið.
Alla fimmtudaga eru hinsegin opnanir fyrir 13-17 ára ungmenni í Árborg í samstarfi við Pakkhúsið. Markmiðið með hinseigin opnunum er að ná til unglinga og ungmenna sem tilheyra hinsegin samfélaginu, eru í hinsegin pælingum eða styðja við hinsegin samfélagið. Þau sem að mæta á opnanirnar ráða sjálf hvað er á dagskrá. Hinsegin opnanirnar eru í Pakkhúsinu. Opnunartímar Fimmtudagur kl. 19:30 - 22:00 Dagskrá
Þann 1. og 2. febrúar verður lengd viðvera hjá okkur í Bjarkarbóli. Þá daga verður opið hjá okkur frá kl 8:00-16:15. Búið er að opna fyrir skráningu inni á Völunni. 
Sæl kæru foreldrar/forráðamenn barna í 1.-4.bekk Nú er komið að fyrsta fréttabréfinu okkar á þessu skólaári og það gleður okkur mikið. Okkur þótti mjög leiðinlegt að geta ekki tekið inn alla krakkana til okkar um leið og skóli hófst en vegna manneklu gekk það því miður ekki upp. Samhliða því sem við lögðumst yfir það að finna frábært starfsfólk til að bætast við nú þegar öflugan starfsmannahóp vorum við einnig að vinna í að semja við skólann um afnot að nýrri aðstöðu fyrir stóru krakkana í 3.-4.bekk. Þann 19.ágúst fengum við síðan stofuna Ú1 í Vallaskóla sem var líka sami…
Barnakór Selfosskirkju er fyrir alla söngelska krakka í 2.-4. bekk. Kórinn æfir einu sinni í viku á þriðjudögum frá 16:15-17:00 og starfar allt skólaárið. Ókeypis starf sem er bæði skemmtilegt og lærdómsríkt! Skráningar fara fram á selfosskirkja.skramur.is Allar upplýsingar er hægt að nálgast hjá Bergþóru í netfangið: berg.runars@gmail.com
Starfsemi Selurinn er opinn á mánudögum og fimmtudögum frá kl 17:00-18:30. Selurinn er ætlaður fólki með fötlun á suðurlandi og þurfa notendur að hafa náð 16 ára aldri. Dagskrá er unnin í samstarfi við notendur og er gefin út mánaðarlega. Ásamt dagskránni eru ýmsir viðburðir eru á dagskrá yfir árið eins og jeppaferð, jólahátíð o.fl. Markmið Selsins er að efla félagsfærni og stuðla að virkni í félagsstarfinu sem og á eigin frítíma. Áhersla er lögð á að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir notendur til að taka þátt í öflugu félagsmiðstöðvarstarfi. Aðstaðan Selurinn er…
Fimmtudagsfjör eru fjölskylduvænar samverur seinnipartinn á fimmtudögum, þar sem börn á leikskóla- og yngri grunnskólaaldri koma saman með foreldrum sínum í hlýlegt, skapandi og trúarlegt rými sem minnir á sunnudagaskólann. Markmiðið með Fimmtudagsfjöri er að skapa öruggt og skemmtilegt samfélag þar sem börn fá tækifæri til að leika, föndra, lita, syngja og hlusta á stutta en uppbyggilega frásögn. Foreldrar fá á sama tíma rými til að slaka á, hitta aðrar fjölskyldur og njóta samveru í kirkjunni. Starfið er sérstaklega hugsað fyrir fjölskyldur sem vilja létta, jákvæða og barnvæna samveru í…
Í haust munu börn í 3. og 4. bekk sameinast frístundaheimilum Árborgar á ný. Við í Bjarkarbóli verðum því með starf fyrir 1-4. bekk næsta haust. Skráning fyrir verðandi 1. og 2. bekk er nú þegar opin og hvetjum við ykkur til að sækja tímalega um til þess að tryggja pláss fyrir ykkar barn. Skráning fyrir verðandi 3. og 4. bekk opnar föstudaginn 9. maí.
Tilkynningar og samskipti Mikilvægt er að tilkynningar berist frá forráðamönnum. Við tökum ekki við munnlegum skilaboðum frá börnunum sjálfum þegar kemur að forföllum, vinaheimsóknum eða upplýsingum um hver sækir o.þ.h. Vinaheimsóknir þurfa að vera skipulagðar fyrirfram því ekki er í boði fyrir börn að hringja úr símum frístundar með hvers kyns fyrirspurnir. Þegar foreldrar/forráðamenn sækja börnin þurfa þeir að láta starfsmann í móttöku vita. Ef foreldri/forráðamaður þarf að ná tali af forstöðumönnum er best að hafa samband fyrir kl.12:00, þar sem forstöðumenn hafa að öllu jöfnu…
SamFestingurinn samanstendur annars vegar af tónleikum og balli á föstudegi þar sem fjöldi vinsælla tónlistarmanna koma fram og hins vegar af söngkeppni Samfés á laugardegi þar sem ungir efnilegir tónlistarmenn stíga á svið. Alls voru um 4500 ungmenni sem sóttu viðburðinn víðsvegar af landinu og fulltrúar 120 félagsmiðstöðva ásamt 300-400 starfsmanna. Öll ungmenni sem sóttu viðburðinn fengu Sjúkást fræðslu sem fjallaði um jafnvægi í samskiptum, mörk og samþykki. Fræðslan er samstarfsverkefni Samfés og Stígamóta. Það hefur verið mikil eftirvænting og spenna fyrir…