Search

Kæru foreldrar og forráðamenn Þá er komið að seinasta fréttabréfi fyrir sumarfrí. Starfsfólk Eldheima eru öll sammála því að það hefur gengið vonum framar að sameina krakka í 3.-4.bekk Vallaskóla, Stekkjaskóla og Sunnulækjaskóla í safnfrístundina Eldheima. Það er ótrúlega magnað að sjá krakkana kynnast og leika saman úr öllum þremur skólunum og við getum ekki beðið eftir að halda áfram í haust. Við þökkum kærlega fyrir traustið og tækifæri til að sýna fram á hvað við höfum fram að færa sem öflug viðbót við þau æðislegu frístundaheimili sem fyrir voru hér í Sveitarfélaginu…
Opnunin markar spennandi skref í þróun félagsmiðstöðvarstarfs í Árborg og þeirri vegferð að færa þjónustuna nær börnum og unglingum. Hrafnhildur Svala er verkefnastjóri Zelsíuz í Stekkjaskóla og mun halda utan um starfið þar. Með nýja útibúinu verður félagsmiðstöðvarstarfið sýnilegra og aðgengilegra fyrir nemendur og gefst þeim tækifæri til að kynnast starfinu og starfsfólki Zelsíuz í sínu daglega umhverfi. Hluti af starfinu verður að vera með opnanir fyrir nemendur í frímínútum og í hádeginu. Þá verður þjónusta fyrir nemendur í 5.–7. bekk aukin, með fleiri opnunum í hverri…
Starfsdagur 24. mars Það verður lokað hjá okkur mánudaginn 24. mars vegna starfsdags. Bókagerð Nú erum við með sjálfboðaliða frá Þýskalandi hjá okkur sem hefur verið með bókagerð í boði fyrir börnin. Hún byrjaði að búa til bók með 2. bekk en hún heitir "Dagur í sjónum" og fjallar um Aron kafara sem lendir í ýmsum ævintýrum í sjónum. Bókin er samin og myndskreytt af krökkunum í 2. bekk og nú ættu þau öll að hafa fengið eintak með sér heim. Nú er hún byrjuð að semja smásögur með 1. bekk og verður gaman að sýna ykkur lokaútkomuna í næsta fréttabréfi.…
Gistinótt í Zelsíuz fyrir 8.-10.bekk
Námskeið með breska motocross þjálfaranum Josh Spinks dagana 1.-2.júní næstkomandi, námskeiðið er haldið í Bolaöldu.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í félagashesthús Sleipnis haustið ‘26 *********************************************************************** Áhersla er lögð á að nemendur læri grunnatriði í hestamennsku undir leiðsögn reiðkennara. Nemendur þurfa að eiga hjálm en fá hest og annan búnað til umráða á tímabilinu. Hægt er að sækja um annað hvort tímabilið eða bæði ! Verð fyrir eitt tímabil: 65.000 Verð fyrir bæði tímabilin: 115.000 Hægt er að nýta frístundastyrk Árborgar. Skráning fer fram í sportabler
Félagsmiðstöðin Zelsíuz í samvinnu við velferðarþjónustu Árborgar hefur lyft grettistaki við að rjúfa félagslega einangrun barna og unglinga og stuðla að því að þeir verði virkir þátttakendur í félagsstarfi Frá því að samstarfsverkefnið hófst árið 2016 hafa um 70% barna eða unglinga sem sótt hafa úrræðið skilað sér inn í frekara félagsstarf.  Verkefnið sýnir vel hvað þverfaglegt samstarf í anda nýrrar löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsæld barna er mikilvægt til að koma til móts við börn og unglinga, eins snemma og unnt er.  Þetta er í fyrsta sinn sem…
USSS - Undankeppni Söngkeppni Samfés á Suðurlandi verður haldin í Þorláksföfn, föstudaginn 15.mars. Hildur Hermannsdóttir ásamt Ragnari, Björgvini, Hrafnari og Jökli taka þátt í keppninni fyrir hönd Zelsíuz. Við munum fara með um 60 unglinga á viðburðinn. 
Öskudagur Það var mikið stuð hjá okkur á öskudaginn. Við vorum með stöðvar í boði þar sem krakkarnir gátu sungið fyrir nammi, búið til grímur, fengið andlitsmálningu og farið í stoppdans. Krakkarnir voru í glæsilegum búningum og skemmtu sér vel :) Bókagerð Í mars var komið að 1. bekk að búa til bók. Þau sömdu ýmsar skemmtilegar smásögur og úr því varð smásagnasafn sem þau síðan myndskreyttu. Útkoman er vægast sagt glæsileg. Nú fer hún Mona, sjálfboðaliðinn sem hefur verið hjá okkur síðastliðnar 6 vikur, á annað frístundaheimili og heldur áfram með sín flottu verkefni. Við…
Kópurinn er frístundaklúbbur ætlaður nemendum á sérnámsbraut Fjölbrautaskóla Suðurlands og hefur starfað síðan haustið 2019. Megináhersla er lögð á að skapa öruggt umhverfi þar sem ungmenni geta hisst og tekið þátt í öflugu frístundastarfi með það að markmiði að efla félagsþroska og félagsfærni. Almennar upplýsingar Fréttasafn Image…