Opnunartími: Öll miðvikudagskvöld kl 19:30 – 21:30 frá og með 23. september
Staðsetning: Tónsmiðja Suðurlands, Eyravegi 67
Lýsing:
Í Opnu listasmiðjuna er frjáls mæting og frjáls sköpun og allar listgreinar velkomnar.
Þetta er vettvangur fyrir listafólk 12 ára og eldri til að koma saman og skapa í félagslegu og hvetjandi umhverfi. Á staðnum er leiðbeinandi með fjölskrúðuga og þverfaglega reynslu í allskonar listsköpun.
Eins geta þátttakendur slegið sér saman með hin og þessi verkefni. Sem dæmi gæti einhver verið að prógramma tölvuleik og þá fengið tölvuteiknara í lið við sig til að skapa myndefni, tónlistarséní til að útfæra undirleik og rithöfund til að hjálpa við að skrifa söguhandrit.
Ekki þarf að skrá sig eða borga við fyrstu mætingu og verður listasmiðjan gjaldfrjáls fyrst um sinn. Seinna verður tekið upp vægt mánaðargjald.