Flexið

Félagsmiðstöðin og velferðarþjónusta Árborgar standa saman að verkefni sem að heitir Flexið.

Verkefnastjóri

Harpa Lilja Vernharðsdóttir
netfang: harpalv@arborg.is

Barnavernd, barnateymi og skólaþjónustan vísa einstaklingum á aldrinum 10-16 ára í Flexið þar sem að honum er síðan parað saman við starfsmann í félagsmiðstöðinni. Starfsmaðurinn og einstaklingurinn hittast síðan einu sinni í viku í nokkrar vikur. Hittingarnir eru skipulagðir út frá áhugasviði einstaklingsins og er markmiðið að virkja einstaklinginn og efla félagslega ásamt því að koma honum inn í annað hvort hópastarf í félagsmiðstöðinni eða opið starf. Markvist hefur verið unnið að því að mynda hópastarf með einstaklingum sem hafa verið vísað inn í þjónustuna. Verkefnið hefur gengið gríðarlega vel síðustu ár og hlaut hvatningarverðlaun Samfés árið 2021 og Íslensku menntaverðlaunanna fyrir framúrskarandi þróunarverkefni árið 2023.