Kórskóli Tónsmiðjunnar

Skráning: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/courselist/10
Kórskóli Tónsmiðjunnar er hugsaður fyrir börn á öllum aldri. Æfingar eru 8 talsins á hverri önn og er 8. skiptið notað sem tónleikar.

Í kór lærir maður að vinna í hóp, syngja saman og hafa gaman, efla samvinnu og samkennd. Efnisskráin hverju sinni er valin af stjórnendum og tekið mið af styrkleika hópsins. Við setjum megin áherslu á íslenska tónlist.

Kórskólinn æfir á föstudögum:
I (4-6 ára) og II (6-8 ára) kl. 14:15 – 14:45
III (8-11 ára) og IV (11-15 ára) kl. 13:15 – 14:00

Stjórnendur Kórskóla Tónsmiðju Suðurlands eru Ingibjörg Erlingsdóttir & Stefán Þorleifsson.

Skólagjöld Kórskólans eru kr. 30.000 á önn.

Upplýsingar
Aldur:
0 - 5 ára
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
Staður:
Selfoss
Sími: 615 2920