Kirkjukrakkar Selfosskirkju

Kirkjukrakkar eru fyrir alla krakka í 1.–4. bekk sem elska fjör, vináttu og skemmtilegar stundir!
Við leikum, syngjum, hlæjum, hlustum á spennandi sögur, föndrum og gerum alls konar sprell sem fyllir kirkjuna af gleði og lífi.

Við hittumst á þriðjudögum í safnaðarheimili Selfosskirkju kl. 15:00-16:00.
Starfið er ókeypis, faglegt og öll börn eru hjartanlega velkomin. Starfið er ekki bundið við ákveðið upphaf og endi, svo það má koma og prófa hvenær sem er á árinu.

Foreldrar geta nýtt frístundaakstur Árborgar fyrir starfið (börnin fara út hjá tónlistarskólanum og labba smá spotta út í kirkjuna).

Fljótlega á eftir Kirkjukrökkum hefst kóræfing barnakórsins, svo þeir krakkar sem vilja geta tekið þátt í báðu.

Skráning og upplýsingar eru inni á selfosskirkja.is

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
Staður:
Selfoss