Félagshesthús Sleipnis haustið 2026

Opnað hefur verið fyrir skráningar í félagshesthús Sleipnis fyrir haustönn á Sportabler.

Félagshesthús Sleipnis bíður uppá námskeið fyrir börn á aldrinum 11-16 ára sem ekki hafa hest til umráða en langar að kynnast hestamennsku og æskulýðsstarfi Sleipnis.

Tímabil 1: 5.október til 5.nóvember
Tímabil 2: 9.nóvember til 10.desember

Kennt á mán og þrið kl.15:30-17:30 (Meira vanir)
Kennt á þrið og fimmt kl.15:30-17:30 (minna vanir/byrjendur)

Tímabilið kostar 65.000 en ef bæði tímabilin eru tekin þá er það 115.000

Hægt er að nýta frístundastyrkinn.

Allar fyrirspurnir er hægt að senda á sleipnir@sleipnir.is og sjá nánari upplýsingar á www.sleipnir.is

Upplýsingar
Aldur:
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Útivist og samvera
Staður:
Selfoss