D&D sumarnámskeið fyrir 10–15 ára.
Tvö skemmtileg sumarnámskeið í Dungeons & Dragons fyrir börn og unglinga á aldrinum 10–15 ára. Námskeiðin henta bæði byrjendum og lengra komnum.
Í D&D vinna þátttakendur saman, leysa verkefni, nota ímyndunaraflið og taka þátt í spennandi ævintýrum. Markmið námskeiðsins er að allir hafi gaman, en um leið er unnið með félagsfærni, samskipti, samvinnu og sjálfstraust í gegnum leikinn.
Námskeiðin eru haldin af Inga Má Þorvaldssyni, sem er með BSc- og meistaragráðu í sálfræði, starfar sem sérfræðingur í grunnskóla og hefur yfir 9 ára reynslu af D&D. Sú menntun og reynsla nýtist vel til að skapa öruggt, jákvætt og uppbyggilegt umhverfi þar sem ólíkir þátttakendur geta notið sín.
Hægt er að nota frístundastyrkinn fyrir þessi námskeið.
4 daga námskeið: 15., 16., 18. og 19. júní – 36.000 kr.
5 daga námskeið: 22.–26. júní – 45.000 kr.
Tími: 10:00–14:00, nema á föstudögum 09:00–13:00.
Staðsetning: Sunnulækjaskóli, Norðurhólar 1
Einnig er hægt að kaupa byrjandapakka með teningapoka og sérgerðum D&D teningum á 5.000 kr.
Aðeins 4–6 þátttakendur á hverju námskeiði.
Skráning og fyrirspurnir:
dedicationdragons@gmail.com