Dansakademían

Á haustönn 2024 bjóðum við upp á eftirfarandi námskeið:

- Barnadans fyrir 4-5 ára
- Jazzballett fyrir 6-16 ára
- Leiklist fyrir 9-15 ára
- Fullorðinstímar fyrir 30 ára og eldri

Nemendur í jazzballett 6-16 ára geta svo valið um að bæta við sig valtímum og æft 2-5x í viku. Einnig geta nemendur 9-16 ára sótt um að komast í keppnislið skólans, TeamDansakademían.

Markmið okkar er að skapa gott og skapandi umhverfi fyrir nemendur á hvaða getustigi sem er til að vaxa og dafna. Við viljum skapa stuðningsríkt samfélag í kringum Dansakademíuna, þar sem maður eignast nýja vini og skapar ævilangar vináttur. Kennarar skólans hjálpa nemendum að auka sjálfstraust og efla sjálfstæði þeirra. Við trúum því að sviðslistir, eins og dans og leiklist, geti haft jákvæð áhrif á líkamlega og andlega líðan nemenda og leggja kennarar skólans sig alla fram við að skilja nemendur eftir með bros á vör í lok hvers tíma.

Upplýsingar
Aldur:
0 - 5 ára
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Fullorðnir
Staður:
Selfoss
Sími: 695 7494