Fréttasafn

Image
Flakkandi Zelsíuz heppnaðist vel í sumar
Starfsfólk Zelsíuz hitti mörg ungmenni í sumar, buðu upp á kvölddagskrá og viðveru á bæjarhátíðum.

Vettvangsstarf félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz gekk afar vel í sumar. Starfsfólkið fór reglulega um bæinn á kvöldin og um helgar þar sem þau hittu fjölda ungmenna á ferðinni. Ungmennin tóku vel á móti starfsfólkinu og voru ánægð að sjá þau á ferðinni.

Einnig var boðið uppá fjölbreytta dagskrá á kvöldin og viðveru á bæjarhátíðum í sveitarfélaginu, meðal annars á Kótelettunni og Sumar á Selfossi. Á hátíðunum var gott samstarf við barnavernd þar sem starfsfólkið var til staðar fyrir ungmennin með sérstakt athvarf á svæðinu.

Markmið verkefnisins var að mæta ungmennum þar sem þau eru stödd, styrkja verndandi þætti í nærumhverfi þeirra, efla tengsl við samfélagið, draga úr áhrifum áhættuþátta og styðja við félagslega stöðu þeirra.

Samstarfið við samfélagslögregluna gekk mjög vel og stuðlaði að auknu öryggi og sýnileika verkefnisins, þar sem fulltrúar samfélagslögreglunnar voru með okkur á vöktum um helgar. Þá gerði veglegur styrkur frá Kvenfélagi Selfoss kleift að efla búnað og aðstöðu til að sinna starfinu.

Zelsíuz þakkar samfélaginu kærlega fyrir stuðninginn, er afar ánægt með hvernig verkefnið tókst til og vonast til að halda því áfram næstu sumur.