Fréttasafn

Image
Vika6 2025
Vikuna 3.-7. febrúar er Vika6.

Vika6 er sjötta vika hvers árs. Í þeirri viku er starfsfólk grunnskóla og félagsmiðstöðva hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu. Leikskólum, frístundaheimilum og öðrum sveitarfélögum er hjartanlega velkomið að taka þátt í Viku6 eftir því sem á við og hentar hverjum og einum. 

Jafnréttisskóli Reykjavíkur stýrir Viku6 en unglingar borgarinnar kjósa þema á hverju ári. Unnið er út frá hugmyndum um alhliða kynfræðslu. Þemað að þessu sinni er líkaminn og kynfærin.

Það er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá í Zelsíuz í vikunni sem samanstendur af tabú, þáttunum sex education, kynfæra föndri ásamt fræðslu frá Jafningjafræðslu Suðurlands.

Öll velkomin að kíkja við í Zelsíuz!