Fréttasafn

Image
Fræðsla og samvera
Fræðsla og samvera fyrir mæður og verðandi mæður hefst föstudaginn 26.janúar

Markmiðið er að valdefla og styðja við mæður á fjölbreyttan hátt svo þær eigi auðveldara með að taka stjórn á eigin lífi og standa með sjálfri sér. Við fáum til okkar fræðslu frá ýmsum fagaðilum, svo sem sjúkraþjálfara, félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðingi, námsráðgjafa, doktor í geðvísindum ásamt fleiri góðum gestum. Hópurinn hittist á föstudögum einu sinni í viku í sex vikur kl. 09:30-11:30. Fyrsti hittingur er föstudaginn 26.janúar.

Fræðslan fer fram í Pakkhúsinu, þar er góð aðstaða fyrir ungabörn og mæður þeirra til að eiga notalega stund saman í rólegu umhverfi. Boðið verður uppá kaffiveitingar meðan á fræðslunni stendur. Fræðslan er gjaldfrjáls og er sérstaklega hugsuð fyrir mæður og verðandi mæður 30 ára og yngri.

Dagskrá

26.janúar
Jafnvægi í daglegu lífi og streitustjórnun - Brynja sálfræðingur hjá Birtu

2.febrúar
Verkfærakistan - Þeódóra doktor í geðvísindum

9.febrúar
Námsmöguleikar - Sandra D. Gunnarsdóttir frá Fræðslunetinu

16.febrúar
Áhugasvið og styrkleikar - Valgerður Rut Jakobsdóttir frá Vinnumálastofnun

23.febrúar
Kvennheilsa, grindarbotn og þjálfun eftir fæðingu. Kynning á mömmuhreysti og box800 - Kristín Júlía sjúkraþjálfari hjá HSu og Alda Kristinsdóttir hjá box800

1.mars
Lokadagur - kaffi, spjall og samvera

Nánari upplýsingar og skráning hjá Ellý Tómasdóttur í síma 480-1951 eða á elly.t@arborg.is