Search
Kennari: Sindri Mjölnir
29. júní - 2. júlí — kl 13:00 - 15:00
Hvort sem þú vilt skrifa smásögur, leikrit, barnabækur, skáldsögur, eða kvikmyndir, þá þarf fyrst að kunna að segja sögu. Þetta námskeið kennir hvernig á að byggja skapalón góðrar sögu frá grunni. Kafað verður dýpra í hvað meinað er með upphafi, miðju og endi, og allt sem skiptir máli þar á milli. Við lok námskeiðs hafa nemendur í höndunum leiðarstjörnu að sinni fyrstu eða næstu sögu og vita skref fyrir skref hvað þarf að gera til að koma henni á blað. Tilvalið fyrir lestrarhesta og upprennandi rithöfunda af öllu tagi.
Sindri er…
Í janúar lögðum við áherslu á smiðjur og önnur verkefni tengd samfélagslæsi. Okkur starfsfólkinu, ásamt börnunum þótti einstaklega skemmtilegt að fá að kynnast uppruna og menningu hvors annars. Við hengdum upp fána allra barna og starfsmanna, ásamt nokkrum mismunandi stafrófum.
Fánarnir í 1.bekk
Við buðum upp á nokkrar smiðjur tengdar samfélagslæsinu, meðal annars landafræðismiðju, þar sem börnin fengu að lita fána að eigin vali og læra í hvaða heimsálfu landið er. Einnig spiluðum við fána bingo til þess að leggja fánana okkar betur á minnið.
Landafræðismiðja
Orð…
Kæru foreldrar og forráðamenn barna í 3.-4. bekk
Nú er komið að fréttabréfi Eldheima fyrir febrúarmánuð
Lengd viðvera 1. - 2. febrúar
Febrúarmánuður hófst á lengdri viðveru dagana 1. og 2. febrúar. Þá daga var farið í skemmtilega leiki og borðaður góður matur.
Regnbogavika Árborgar
Regnbogavika Árborgar, sem stendur yfir núna síðustu vikuna í mánuðinum,fór mjög vel fram. Við hengdum upp fallega regnboga fánann og krakkarnir eru búnir að fá að skreyta gluggana sem og rýmin sem við höfum með regnbogalituðum myndum sem þau hafa litað. Þeir krakkar sem vildu gátu teiknað…
Opnunartími:Mánudaga - föstudaga: kl. 09:00 - 18:00Laugardaga: kl. 10:00 - 14:00Sunnudaga: LokaðLesstofan og Listagjáin eru opin á sama tíma og bókasafnið.
Sæl kæru foreldrar/forráðamenn barna í 1.-4.bekk
Nú er komið að fyrsta fréttabréfinu okkar á þessu skólaári og það gleður okkur mikið.
Okkur þótti mjög leiðinlegt að geta ekki tekið inn alla krakkana til okkar um leið og skóli hófst en vegna manneklu gekk það því miður ekki upp.
Samhliða því sem við lögðumst yfir það að finna frábært starfsfólk til að bætast við nú þegar öflugan starfsmannahóp vorum við einnig að vinna í að semja við skólann um afnot að nýrri aðstöðu fyrir stóru krakkana í 3.-4.bekk.
Þann 19.ágúst fengum við síðan stofuna Ú1 í Vallaskóla sem var líka sami…
Alla fimmtudaga eru hinsegin opnanir fyrir 13-17 ára ungmenni í Árborg í samstarfi við Pakkhúsið. Markmiðið með hinseigin opnunum er að ná til unglinga og ungmenna sem tilheyra hinsegin samfélaginu, eru í hinsegin pælingum eða styðja við hinsegin samfélagið. Þau sem að mæta á opnanirnar ráða sjálf hvað er á dagskrá. Hinsegin opnanirnar eru í Pakkhúsinu.
Opnunartímar
Fimmtudagur kl. 19:30 - 22:00
Dagskrá
Þann 1. og 2. febrúar verður lengd viðvera hjá okkur í Bjarkarbóli. Þá daga verður opið hjá okkur frá kl 8:00-16:15. Búið er að opna fyrir skráningu inni á Völunni.
Barnakór Selfosskirkju er fyrir alla söngelska krakka í 2.-4. bekk.
Kórinn æfir einu sinni í viku á þriðjudögum frá 16:15-17:00 og starfar allt skólaárið.
Ókeypis starf sem er bæði skemmtilegt og lærdómsríkt!
Skráningar fara fram á selfosskirkja.skramur.is
Allar upplýsingar er hægt að nálgast hjá Bergþóru í netfangið: berg.runars@gmail.com
Í haust munu börn í 3. og 4. bekk sameinast frístundaheimilum Árborgar á ný. Við í Bjarkarbóli verðum því með starf fyrir 1-4. bekk næsta haust.
Skráning fyrir verðandi 1. og 2. bekk er nú þegar opin og hvetjum við ykkur til að sækja tímalega um til þess að tryggja pláss fyrir ykkar barn.
Skráning fyrir verðandi 3. og 4. bekk opnar föstudaginn 9. maí.
Starfsemi
Selurinn er opinn á mánudögum og fimmtudögum frá kl 17:00-18:30.
Selurinn er ætlaður fólki með fötlun á suðurlandi og þurfa notendur að hafa náð 16 ára aldri. Dagskrá er unnin í samstarfi við notendur og er gefin út mánaðarlega. Ásamt dagskránni eru ýmsir viðburðir eru á dagskrá yfir árið eins og jeppaferð, jólahátíð o.fl.
Markmið Selsins er að efla félagsfærni og stuðla að virkni í félagsstarfinu sem og á eigin frítíma. Áhersla er lögð á að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir notendur til að taka þátt í öflugu félagsmiðstöðvarstarfi.
Aðstaðan
Selurinn er…