Viðburðir
Samfestingurinn
Samfestingurinn samanstendur af balli og söngkeppni. Ballið fer fram á föstudeginum þar sem unglingar og starfsfólk koma í rútum í Laugardalshöll á risa ball þar sem stór bönd spila fyrir dansi í bland við unga tónlistarmenn úr félagsmiðstöðvum. Á laugardeginum fer Söngkeppni Samfés fram sem er einnig send út í beinni útsendingu á RÚV.