Viðburðir

8 febrúar 2027 - 12 febrúar 2027
Vika6

Vika6 er kynfræðsluátak fyrir ungmenni sem fer fram í sjöttu viku hvers árs. Ungmenni Reykjavíkurborgar velja sjálf þema hvers árs og útbýr Jafnréttisskólinn fræðsluefni út frá því. Starfsfólk leikskóla, grunnskóla, félagsmiðstöðva og frístundaheimila er hvatt til að setja kynheilbrigði í forgrunn og bjóða upp á fjölbreytta kynfræðslu sem miðar að aldri og þroska ungmennanna. 

Zelsíuz mun taka þátt í Viku6 líkt og undanfarin ár og mun bjóða uppá fjölbreytta dagskrá sem miðar af kynheilbrigði.