Leik og Sprell í Árborg

Leik og Sprell verður á Selfossi og Stokkseyri í sumar. Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára. 

Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu. Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur. 

5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 28.000 krónur. 

Athygli er vakin á því að hægt er að nýta frístundastyrkinn. Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is 

Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Stokkseyri
Sími: 845 4795
Annað:
Við hvetjum ykkur til að sækja Abler appið en allar upplýsingar munu koma fram þar.