Furðugrímugerð - hefst 25. september

Skráning: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/course/60/0/0/11
Nemendur læra að hanna sína eigin grímu, smíða beinagrind úr bylgjupappa og klæða með pappamassa.
Grímurnar eru síðan málaðar og skreyttar að vild. Á skreytingarstiginu mega nemendur koma með efni að heiman, eins og fjaðrir, textíl, glimmer, skrautsteina og þess háttar.
Kennt á föstudögum kl. 16:15
Verð kr. 45.000 önnin.
Kennari: Sindri Mjölnir

Gróf tímalína:
Vika 1-2: Námskeiðskynning og hugmyndavinna, nemendur teikna upp hönnun, reyna að fyrirsjá vandamál og undirbúa lausnir.

Vika 3-5: Beinagrind úr bylgjupappa og málningarteipi föndruð og mátuð.

Vika 6-8: Beinagrindin klædd með pappamassa.

Vika 9-11: Gríman máluð, lökkuð og skreytt.

Vika 12: Furðugrímuganga/sýning

Upplýsingar
Sími: 770 7882