Sumarfrístundir Árborgar

Sumarfrístund byrjar mánudaginn 10.júní - 11 júlí og verður starfsstöð á hverju heimili.

Sumarfrístund verður lokuð í 4 vikur í sumar. Lokað er frá og með 14.júlí og opnar aftur 11.ágúst.

Athugið skráning á námskeið lokar fimmtudag kl: 12:00 í vikunni fyrir námskeið.

Ekki er boðið upp á hressingu fyrir þátttakendur, þurfa börnin því að koma með 3 nesti fyrir hvern dag. Gott er að merkja nestið 1-2-3 svo börnin geri greinamun á morgunhressingu, hádegismat og síðdegishressingu.

Sumarfrístund verður opin frá kl: 9:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og hægt er að greiða fyrir viðbótarstund frá kl: 8:00 - 9:00.

Á föstudögum lokar sumarfrístund kl. 14:00 vegna styttri vinnuviku og starfsmannafunda.

Fyrirkomulagið er þannig að einstaklingur skráir sig fyrir hverja viku. Það er einungis hægt að skrá á heila námskeiðsviku, ekki einstaka daga.

Fyrstu tvær vikurnar ásamt þeirri síðustu eru 4. daga námskeið vegna lögbundinna frídaga og Fræðsludags Árborgar.

Í sumarfrístund er ekki tekið tillit til æfingartíma annarra tómstunda/námskeiða.

Viðbótarstund - 2.795kr –

5 daga námskeið - 14.490kr –

4 daga námskeið - 12.420kr

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
Útivist og samvera
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 480 1900
Annað:
Sundferðir, upplifanir, útivera, vísindi, ævintýri, vinátta, ferðir og flakk.