Skapandi sumarsmiðja þar sem við prófum allskonar skapandi verkefni. Vinnum með leir, málningu, perlur, textíl og skemmtilegt föndur. Áhersla á sköpunargleði, notalega stemningu og að hvert barn fái að njóta sín.
Við vinnum í litlum hópum þar sem hvert barn fær næði og persónulega leiðsögn. Börnin taka heim allskonar fallega muni og listaverk sem þau skapa sjálf yfir vikuna.
Takmörkuð pláss í boði