Skapandi skrif: Sagnalist

Kennari: Sindri Mjölnir
29. júní - 2. júlí — kl 13:00 - 15:00

Hvort sem þú vilt skrifa smásögur, leikrit, barnabækur, skáldsögur, eða kvikmyndir, þá þarf fyrst að kunna að segja sögu. Þetta námskeið kennir hvernig á að byggja skapalón góðrar sögu frá grunni. Kafað verður dýpra í hvað meinað er með upphafi, miðju og endi, og allt sem skiptir máli þar á milli. Við lok námskeiðs hafa nemendur í höndunum leiðarstjörnu að sinni fyrstu eða næstu sögu og vita skref fyrir skref hvað þarf að gera til að koma henni á blað. Tilvalið fyrir lestrarhesta og upprennandi rithöfunda af öllu tagi. 

Sindri er fyrsta flokks lestrarhestur og skáld. Hann hefur skrifað fjölda leikrita, kvikmyndahandrita, og meira að segja heila 120 þúsund orða (437 bls.) skáldsögu. Sindri er með BFA gráðu í Kvikmyndagerð með áherslu á leikstjórn frá háskólanum Columbia College Hollywood í Los Angeles, Bandaríkjunum - þar sem hann lærði meðal annars listina að því að segja góða sögu.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 23.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/

Upplýsingar
Aldur:
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 770 7882