Skapandi krakkar – 12 vikna haust námskeið
Skemmtilegt og fjölbreytt skapandi námskeið fyrir krakka sem hafa gaman af því að skapa, prófa nýja hluti og vinna með fjölbreytt efni.
Á námskeiðinu ætlum við meðal annars að vinna með leir, myndlist, textíl, skartgripagerð, föndur og margt fleira. Verkefnin verða fjölbreytt og aðlöguð að aldri hópsins, þannig að börnin fái bæði að læra nýja tækni og hafa frelsi til að setja sinn eigin svip á verkin.
Skráning fer fram á hornidcreativestudio.is