Myndlist: Tölvuteikningar

Kennari: Sindri Mjölnir
15. 16. 18. og 19. júní — kl 18:00 - 21:00

Á námskeiðinu læra nemendur öll helstu skrefin við að teikna með teikniforriti. Að námskeiði loknu ætti nemandinn að hafa lokið við eina fullkláraða mynd án bakgrunns. Námskeiðsdagar skipta skrefunum:
Skissa; form og flæði
Útlínur; tækni og penslar (brushes)
Flatir litir; value og þema
Ljós og skuggi; lögmál og stillingar. 

KRÖFUR: Nemendur þurfa eigin tölvu+teikniborð (eða spjaldtölvu+penna) og aðgang að teikniforriti (Adobe Photoshop æskilegast)

Sindri (www.myndskreytir.is) er reyndur myndlistarmaður og hefur hann myndskreytt barnabækur eins og “Skotti og sáttmálinn” en einnig unnið sérstaklega við persónusköpun. Þá hannaði hann lukkudýr (e. mascot) Dýraríkisins og teiknaði allar myndirnar af þeim en þær má finna í lógóinu sjálfu og á heimasíðu verslunarinnar.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 12 nemendur á táningsaldri.

Verð: 29.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/

Upplýsingar
Aldur:
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 770 7882