Leiklist: Kvikmyndaleikur

Kennarar: Hafþór Agnar Unnarsson Sindri Mjölnir
22. júní - 25. júní — kl 10:00 - 12:00

Lærðu að leika fyrir framan myndavél! Örnámskeið í kvikmyndaleiklist gefur þér tækifæri að læra kúnstir kvikmyndaleikarans undir handleiðslu atvinnukvikmyndaleikstjóra og -leikara. Kennsluumhverfið er allt að þriggja myndavéla upptökuver ásamt textavél (e.teleprompter). Nemendur geta fylgst með hvað myndavélarnar sjá, en myndefninu veður varpað á stóran skjá í rauntíma, og læra því ekki bara þegar röðin er komin að þeim fyrir framan vélarnar. Námskeiðið er kennt af tveim kennurum, annar með leikurum í “sjónvarpsveri” og hinn með leikurum í “video village”. Nemendur mega búast við að þurfa að læra einhvern texta heima á milli kennslustunda.

Hafþór Agnar Unnarsson er leikari með BA próf í Evrópskum Leikhúslistum frá Rose Bruford College of Theatre & Performance í London. Hann hefur kennt leiklist í grunnskólum og á ýmsum námskeiðum, ásamt því að hafa leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og má þá helst telja Uglur (2020) og Reykjavík Fusion (2025). Hann leikur Kennarann í TónÆði (www.tónæði.is) sem er einmitt leikstýrt af:

Sindra Mjölni, sem er með BFA gráðu í Kvikmyndagerð með áherslu á leikstjórn frá háskólanum Columbia College Hollywood í Los Angeles, Bandaríkjunum. Hann hefur unnið við að senda út þætti í beinni útsendingu, verið tökustjóri fyrir hlaðvarpið Kaldi Potturinn, en þessa dagana sér hann um framleiðslu (skrif, leikstjórn, tökur og eftirvinnslu) fræðsluþáttanna TónÆði.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 8 nemendur á táningsaldri.

Verð: 44.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/

Upplýsingar
Aldur:
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 770 7882