Leiklist: Brúðuleikur

Kennari: Hafþór Agnar Unnarsson
29. júní - 2. júlí — kl 10:00 - 12:00

Á námskeiðinu læra nemendur helstu undirstöður í brúðuleik og að búa til “lifandi” brúðu úr hversdagslegum hlutum sem oftar en ekki finnast í ruslinu. Nemendur undir leiðsögn Haffa spreyta sig á að “finna leikinn” (Le jeu), hlutastjórnun (Object manipulation), rýmisvitund og öndun til að gefa brúðunum líf. 

Haffi (Hafþór) lærði leiklist í Rose Bruford í London þar sem hann útskrifaðist árið 2019, í náminu starfaði hann meðal annars með Listaháskóla Eistlands í Tallin og leiklistahópunum “Two Worlds Collective”, “Out of Duck theatre company” og “Meeting Place Theatre”. Eftir útskrift starfaði Haffi í nokkur ár sem leiklistarkennari í Vallaskóla á Selfossi samhliða þess að hafa farið með leiksýningu á listahátíðina Edinburgh fringe, leikstýrt, og leikið bæði á sviði og sjónvarpi.

Námskeiðið er haldið í Tónsmiðju Suðurlands, Eyravegi 67 á Selfossi, fyrir 4 - 10 nemendur á táningsaldri.

Verð: 23.900 kr
Skráningarvefur: https://istonsmidjan.speedadmin.dk/registration#/

Upplýsingar
Aldur:
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 770 7882