UnglingaFit

Æfingar þar sem meiri áhersla er lögð á tækni/líkamsbeitingu og æfingar með líkamsþyngd. Krakkarnir læra undirstöðu atriði í olympískum lyftingum, fimleikum, kraftlyftingum ofl, bæta liðleika, snerpu, samhæfingu, jafnvægi.
Tímarnir eru í gangi allt árið og iðkendur geta byrjað um leið og forráðamaður hefur fengið póst um staðfestingu skráningar.
UnglingaFit 12-16 ára
Öllum UnglingaFit samingum fylgir aðgangur að Open gym, en ath aldurstakmörk á open gym er 14 ára nema í fylgd með forráðamanni.
Ótímabundinn samningur er bundin í 12 mánuði og uppsegjanlegur að þeim tíma liðnum með 1 mánaðar uppsagnafresti . Ath samningur fellur ekki sjálfkrafa úr gildi. Allar uppsagnir fara fram í Abler.
Stakur mánuður gildir í 31 dag.
Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga
Kl. 15.30-16.25
Krakkarnir geta valið um hvaða tíma þau mæta í hverju sinni. Mikilvægt er að þau hafi netfang svo hægt sé að skrá þau í wodify en það er forrit sem við notum til að skrá okkur í tímana og halda utanum árangur fyrir þá sem það vilja

Upplýsingar
Aldur:
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Staður:
Selfoss