Keppnisnámskeið fyrir yngri flokka (10-16 ára) á vegum Sleipnis og Hestamiðstöðvarinnar á Sólvangi

Hestamannafélagið Sleipnir í samstarfi við Siggu Pje á Sólvangi, bíður upp á keppnisnámskeið fyrir yngri flokka í júlí.

Námskeiðin eru 4 klst í senn eftir hádegi í 5 daga. Námskeiðið hentar bæði þeim sem hafa verið að keppa og vilja bæta sig og þeim sem stefna á þátttöku í keppni. Námskeiðið er ætlað meira vönum knöpum með sína hesta en einnig verður mögulegt að fá hest að láni meðan á námskeiðinu stendur.

Boðið verður upp á tvö námskeið:
30. Júní – 4. Júlí á Sólvangi við Eyrarbakka
7.júlí – 11. Júlí á Sólvangi við Eyrarbakka

Fyrirkomulagið verður þannig:
Kennt verður frá 12:30 – 16:30 (4 klst)
Á námskeiðinu er meðal annars farið yfir þjálfun og uppbyggingu keppnisknapa og keppnishrossa með bæði bóklegri og verklegri kennslu, reglur í keppni og ýmist annað er snýr að bætingu knapa og hests. Í lok námskeiðs er haldið einskonar mót þar sem þátttakendur fá að spreyta sig á keppnisvelli og fá einkunnir og endurgjöf frá dómara.
Yfirkennari námskeiðsins er Sigga Pje á Sólvangi en hún er m.a. reiðkennari, íþróttadómari og gæðingadómari og hefur umgangsmikla reynslu af þjálfum keppnisknapa.

Námskeiðsgjald fyrir eina viku / 5 daga er: 55.500
Innifalið í námskeiðsgjaldi er pláss fyrir eigin hest á meðan námskeiði stendur og eða hestur að láni frá Sólvangi.
Hámarksfjöldi þátttakenda er 8 á hvort námskeið.

Allar nánir upplýsingar og skráning fer fram hjá Siggu í S:899-7792 eða á netfanginu icelandichorsecenter@gmail.com.

Upplýsingar
Aldur:
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
Staður:
Eyrarbakki
Sími: 899 7792