
Sumarsmiðjur Zelsíuz 2025
Allar helstu upplýsingar eru hér fyrir neðan.
Félagsmiðstöðin Zelsíuz stendur fyrir sumarsmiðjum fyrir börn fædd 2012-2014 (5.-7. bekkur). Sumarsmiðjurnar hefjast 10. júní og eru til 11. júlí í húsnæði Sunnulækjarskóla. Boðið verður uppá fjölbreyttar smiðjur eins og föndursmiðjur, matreiðslugerð, ævintýraferðir, ýmsar leikjasmiðjur og margt fleira.
Fyrirkomulag smiðjanna er eftirfarandi:
• 9:00-12:00 smiðja 1
• 12:00-13:00 hádegishlé
• 13:00-16:00 smiðja 2
Þátttakendur geta skráð sig í staka smiðju, heilan dag eða í heila viku.
• Verð fyrir staka smiðju er 1500 kr.
• Verð fyrir ferð er 3000 kr.
• Verð fyrir heila viku er 11.000 kr.
Skráning fer fram á sumar.vala.is
Fjöldatakmarkanir eru í hverja smiðju svo um að gera að skrá sig sem fyrst. Það verður opnað fyrir skráningar 4. júní.
Skráning í smiðjurnar lýkur á miðnætti fimmtudags í vikunni á undan þeirri viku sem smiðjan fer fram.
Afskráning: Mikilvægt er að afskrá sem fyrst svo hægt sé að taka inn af biðlista. Afskráning lokar kl. 9:00 degi fyrir smiðju. Ef afskráning berst ekki fyrir þann tíma verður tekið gjald fyrir smiðjuna. Afskráning fer sömuleiðis fram á sumar.vala.is eða í gegnum tölvupóst rebekkald@arborg.is
Fyrir frekari upplýsingar um sumarsmiðjurnar er hægt að hafa samband við umsjónaraðila:
Rebekka Lind Daníelsdóttir
Tölvupóstfang: rebekkald@arborg.is
Sími: 830-0852