Leikhúsnámskeið

Leikhúsnámskeið

Leikfélag Selfoss verður að venju með námskeið fyrir börn og unglinga í leiklist. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmiskonar leiklistaræfingar og spuna og unnið að eflingu sjálfstrausts, gleði og jákvæðni. Að þessu sinni verður boðið upp á sjö leikhúsnámskeið fyrir aldurshópinn 7–14 ára (fædd 2012-2019).

Verð er 17.000 kr., innifalið er síðdegissnarl.

Skráningar í netfangið sumarnamskeid@leikfelagselfoss.is

Með skráningu þarf að fylgja:

•Nafn og kennitala nemanda

•Nafn og símanúmer forráðamanns

•Ef viðkomandi er með eitthvað ofnæmi er gott að taka það fram

 Námskeiðin verða eftirfarandi vikur:

Vikuna 15. júní – 19. júní kl. 11:00 – 16:00, mánudag til föstudags, frí 17. júní. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 19. júní.

Vikuna 22. júní – 26. júní kl. 09:00 – 13:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 12:00 þann 26. júní.

Vikuna 29. júní – 3. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 3. júlí.

Vikuna 6. júlí – 10. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 10. júlí.

Vikuna 13. júlí – 17. júlí kl. 11:00 – 15:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 14:00 þann 17. júlí.

Leiðbeinendur á námskeiðunum eru Sigríður Hafsteinsdóttir, Guðný Lára Gunnarsdóttir og Kristbjörg Sigtryggsdóttir.

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
Sumarnámskeið
Staður:
Selfoss
Sími: 696 2787