Japanskt Dansleikhús

Það verður spennandi dans og leiklistarnámskeið, Japanskt dansleikhús, fyrir börn 6 - 8 ára í boði á Eyrarbakka í sumar á Stað, á vegum Ungmennafèlag Eyrarbakka.

Á námskeiðinu leikum við með sköpunarkraftinn og ræktum líkamsmeðvitund. Hvert og eitt okkar er fræ en öll erum við ólík að uppruna og útkomu. Börnin fá tækifæri til að rannsaka það hvers konar fræ þau eru og rækta blómin sem þau sjálf eru.

Við ætlum að vinna með náttúruna og sögur frá Kóreu, Japan og Íslandi. Á lokadegi deila börnin afrakstri námskeiðsins með aðstandendum.

Kennarar eru Gio Ju, Butoh dansari frá Suður Kóreu og Hera Fjord, leikkona og leikstjóri frá Íslandi.

7. - 11. júlí 2025
Frá kl: 12 - 15
Börn 6 - 8 ára
12.900kr

Skráning fer í gegnum: umfeyrarbakki@gmail.com

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
Staður:
Eyrarbakki
Sími: 696 7760