Golfæfingar barna og unglinga

Barna- og unglingaæfingar GOS 2025

Æfingar byrja 2.des 2024 til 26.sept 2025

Útiæfingar frá og með 5.maí

Hópur 2
Stelpur og strákar 13 ára og yngri (á árinu 2025)
49.900 kr.
Árgjald í Golfklúbbi Selfoss er innifalið í æfingagjöldum.
Mánudaga og miðvikudaga kl. 17:00 – 18:00
Þjálfari: Arnór Ingi Hlíðdal

Hópur 3
Strákar og stelpur 14 -18 ára (á árinu 2025)
49.900 kr.
Árgjald í Golfklúbbi Selfoss er innifalið í æfingagjöldum.
Mánudaga og miðvikudaga kl. 18:00 – 18:50
Þjálfari: Arnór Ingi Hlíðdal

Hópur 4 Stúlknahópur
Stelpur 9 – 15 ára (á árinu 2025)
49.900 kr.
Árgjald í Golfklúbbi Selfoss er innifalið í æfingagjöldum.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:00 – 18:00
Þjálfarar: Heiðrún Anna Hlynsdóttir og Alexandra Eir Grétarsdóttir

Hópur 5 afrekshópur
75.000 kr. 
Árgjald í Golfklúbbi Selfoss er innifalið í æfingagjöldum.
Þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:00 – 19:00
Þjálfari: Hlynur Geir Hjartarson
Þjálfari velur í afrekshóp

Skráning er á slóðinni: https://www.sportabler.com/shop/gosgolf

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Geir hlynur@gosgolf.is.


GOLFLEIKJANÁMSKEIÐ GOS 2025
ÆFINGAR – GOLFHERMAR - LEIKIR – GRILL - GÖNGUFERÐIR
Aldur: 6-12 ára.
Dagsetningar:
7 – 11. Júlí 
14 – 18. Júlí 
Námskeiðið er frá kl. 9:00 – 12:00
Mæting er í inniaðstöðu GOS ( Golfhermar ) Þátttakendur mæta þar í upphafi dags og aðstandendur sækja á sama stað í lok dags. Nemendur taka með sér létt nesti.
Gjaldið er 10.000 kr. vikan
Veittur er 20% systkinaafsláttur. 
Þau sem eiga ekki kylfur geta fengið lánaðar kylfur á námskeiðinu. 
Markmið golfleikjanámskeiðanna er að kynna golfíþróttina fyrir börnum og ýta undir áhuga þeirra á því að leggja stund á þessa göfugu íþrótt. Farið verður í helstu þætti golfleiksins, allt frá púttum í upphafshögg og eru leiðbeiningar gjarnan í formi ýmiskonar golfleikja. Einnig verður lögð áhersla á að kynna golfsiði og golfreglur fyrir nemendum. Forgangsatriði námskeiðanna er að þau séu skemmtileg, að börnin njóti sín og þrói jákvætt viðhorf til golfíþróttarinnar og komi til með að stunda hana ævilangt. Iðkenndur geta tekið fleiri en eitt námskeið, en einnig er hægt að stunda æfingar frá 6 ára aldri hjá GOS sem félagsmaður.
Námskeiðinu lýkur með pylsuveislu og afhendingu viðurkenningarskjals frá GOS.
Leiðbeinendur: Þjálfari námskeiðanna er Arnór Ingi Hlíðdal PGA Golfkennaranemi og aðrir leiðbeinendur námskeiðanna koma úr hópi afrekskylfinga GOS. 
Skráning: Fer fram í gegnum Sportabler: https://www.sportabler.com/shop/gosgolf 
Nánari upplýsingar  er hjá Hlyni Geir Hjartarsyni yfirþjálfara og framkvæmdarstjóra GOS  á netfanginu hlynur@gosgolf.is 
 

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Staður:
Selfoss
Sími: 482 3335