D&D sumarnámskeið

Dungeons & Dragons sumarnámskeið
Dedication Dragons!
(Dungeon, Education and Dragons)

D&D sumarnámskeið fyrir þá sem hafa áhuga á ævintýrum, þrautum og samvinnu. Þátttakendur spila með öðrum ævintýramönnum í töfrandi ferð fulla af áskorunum, skrímslum og spennandi verkefnum. Í námskeiðinu munu þátttakendur læra að búa til persónur í D&D, hvernig á að spila og vinna saman í hóp. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og lengra komna.

Leiðbeinandi er með mikla reynslu af kennslu D&D og kennir það sem valáfanga í Sunnulækjarskóla. Hann er einnig með meistaraprófi í hagnýtri sálfræði. Í gegnum hlutverkaspilið munu þáttakendur þróa félagslega færni sem mun styrkja þau á öllum sviðum, ásamt lausnamiðaðri hugsun og sköpun.
Komdu og vertu með í viku ævintýri, lærdóms og skemmtunar!

Þátttakendur: Börn á aldrinum 10-14 ára.

Námskeiðið er kennt frá kl.12-16, mánudag til fimmtudags og frá 9-13 á föstudögum.

Þrjú námskeið eru í boði.
- Vikuna 10-14. Júní
- Vikuna 17-21. júní
- Vikuna 24-28. Júní

Staðsetning: Zelsiuz á selfossi, Austurvegi 2B

Leiðbeinandi: Ingi Már Þorvaldsson

ATH. Hámark 6 þátttakendur í hvert námskeiðið svo við hvetjum þig til að skrá þig sem fyrst.

Verð: 39.900

Hægt að nota frístundastyrk Árborgar.

Skráning og fyrirspurnir sendist á Inga Má á dedicationdragons@gmail.com eða í síma 866-0090.

Upplýsingar
Aldur:
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
Staður:
Selfoss
Sími: 866 0090
Annað:
Ef það eru einhverjar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst eða hringja.