Leikhúsnámskeið

Leikhúsnámskeið

Leikfélag Selfoss verður að venju með námskeið fyrir börn og unglinga í leiklist í sumar. Unnið verður með framkomu, tjáningu, sjálfsöryggi á sviði, samvinnu og almenna jákvæðni í garð leiklistar. Farið verður í ýmiskonar leiklistaræfingar og spuna og unnið að eflingu sjálfstrausts, gleði og jákvæðni. Að þessu sinni verður boðið upp á átta leikhúsnámskeið fyrir aldurshópinn 7–13 ára (fædd 2011-2017).

Verð er 15.000 kr., innifalið er síðdegissnarl.

Skráningar í netfangið sumarnamskeid@leikfelagselfoss.is

Með skráningu þarf að fylgja:

•Nafn og kennitala nemanda
•Nafn og símanúmer forráðamanns
•Ef viðkomandi er með eitthvað ofnæmi er gott að taka það fram

Námskeiðin verða eftirfarandi vikur:

Vikuna 10. júní – 14. júní kl. 09:00-13:00 mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 12:00 þann 14. júní.

Vikuna 18. júní – 21. júní kl. 09:00 – 14:00, þriðjudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 13:00 þann 21. júní.

Vikuna 24. júní – 28. júní kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 28. júní.

Vikuna 1. júlí – 5. júlí kl. 09:00 – 13:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 12:00 þann 5. júlí.

Vikuna 22. júlí – 26. júlí kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 26. júlí.

Vikuna 29. júlí – 2. ágúst kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 2.ágúst.

Vikuna 6. – 9.ágúst kl. 11:00 – 16:00, þriðjudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 9.ágúst.

Vikuna 12. ágúst – 16. ágúst kl. 12:00 – 16:00, mánudag til föstudags. Námskeiði lýkur með sýningu fyrir aðstandendur kl. 15:00 þann 16. ágúst.

Leiðbeinendur á námskeiðunum eru Daníel Logi Róbertsson, Guðný Lára Gunnarsdóttir, Kristbjörg Sigtryggsdóttir og Sigríður Hafsteinsdóttir.

Upplýsingar
Aldur:
6 - 7 ára
8 - 9 ára
10 - 11 ára
12 - 13 ára
Staður:
Selfoss