Félagshesthús Sleipnis vetur 2027

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Félagshesthús Sleipnis veturinn 2027. Skráning fer fram á abler.io
Hægt er að sækja um allt tímabilið sem telur 12 vikur eða 6 vikur í senn. Ekki er kennt í Dymbilviku.
Félagshesthús Sleipnis er frábær vettvangur fyrir áhugasama krakka á aldrinum 10-18 ára að kynnast hestamennskunni. Hestar og búnaður eru til staðar fyrir utan reiðhjálm. Boðið er uppá reiðkennslu hjá menntuðum reiðkennara og leiðsögn í umhirðu hesta sem og tengingu við æskulýðsstarf Sleipnis.
Kennt er 2x í viku í 2 klukkustundir í senn:
Mán og mið kl. 15.30 - 16.30
Þri og fim kl. 15.30 - 16.30
Kostnaður:
Allt tímabilið kr. 120.000 11. jan - 8. apríl
Fyrra tímabilið kr. 70.000 11. jan - 18. feb
Seinna tímabilið kr. 70.000 22. feb - 8. apríl
Hægt er að nota frístundastyrkinn.
Allar frekari fyrirspurnir skulu berast á sleipnir@sleipnir.is

Upplýsingar
Aldur:
10 - 11 ára
12 - 13 ára
14 - 15 ára
16 - 18 ára
Staður:
Selfoss
Vefsíða: https://sleipnir.is