Allir á bak - reiðnámskeið fyrir börn með sér- og stuðningsþarfir
Umsjónaraðili og leiðbeinandi er Elísabet Sveinsdóttir en hún hefur mikla reynslu að því að vinna með börnum með sérþarfir. Með henni verður Birna Káradóttir og saman leggja þær áherslu á fagmennsku, öryggi og einstaklingsmiðaða nálgun.
Kennslan mun fara fram á föstudagur í reiðhöll Sleipnis á Brávöllum Selfossi og samanstendur námskeiðið af fjórum skiptum.
Fyrsti tíminn verður föstudaginn 20. nóvember og er námskeiðið 4 tímar.
Kennslan fer fram í litlum hópum til að tryggja góða aðstoð en allt að fjórir þátttakendur eru í hvorum hópi. Annar hópurinn verður kl.14:30 og hinn kl. 15:15
Ef þátttakandi þarfnast mikillar aðstoðar við að komast á bak er nauðsynlegt að aðstoðamaður sé honum innan handar á meðan kennslu stendur.
Búið er að opna fyrir skráningu í SportAbler og kostar námskeiðið 23.000 kr. og hægt er að nýta frístundastyrkinn til greiðslu.
Skráning fer fram inná abler og ef óskað er eftir frekari upplýsingum er um að gera að senda línu á betasveins8@gmail.com